Útvarpsauglýsingar

Útvarpsauglýsingar

Auglýsingar á útvarpsmiðlum geta margborgað sig ef þær eru hnittnar, vel lesnar og skilja eitthvað eftir sig.

Kosturinn við útvarpsauglýsingar er að þær geta náð óskiptri athygli hlustandands á meðan hann er, í mörgun tilfellum, keyrandi í umferðinni eða sinna húsverkum.

Hér&Nú er fært um að sjá um hugmyndavinnuna fyrir þitt fyrirtæki að eftirminnilegum hljóðauglýsingum. Við fáum til liðs við okkur raddleikara eða skemmtikrafta sem ljá skilaboðunum persónuleika og við sjáum líka um að birta auglýsinguna á helstu útvarpsstöðum landsins.

Hljóðupptökurnar sjálfar er hægt að endurnýta á samfélagsmiðlum með því að bæta við grafík eða hreyfihönnun og gefa þeim myndefni sem passar við.

Ef verið er að keyra allsherjar auglýsingaherferð þvert á marga miðla, er mikilvægt að það sé góð dekkun á útvarpsmiðlum sem og annars staðar til þess fanga athygli fólks á mörgum sviðum.

Atlantsorka - Óli Stef

Jákvæðum skilaboðum var dreift til landsmanna á erfiðustu tímum dagsins í boði Atlantsorku, til dæmis þegar margir eru fastir í umferð. Þá er mikilvægt anda inn og huga jákvæðu orkunni.

Áherslan var á heilun og jákvæða orku í auglýsingaherferð fyrir Atlantsorku sem framleidd var af Hér&Nú auglýsingastofu
Icon
Ormsson 100 ára

Við fögnuðum 100 ára afmæli Ormsson með því ferðast aftur í tímann og útvarpsauglýsingarnar voru engin undantekning og voru þær í gamaldags stíl af tilefninu.

Útvarpsauglýsingar voru lesnar í gamaldags stíl fyrir Ormsson, framleitt af Hér&Nú auglýsingastofu
image
Atlantsolía - Ódýrasta herferðin

Stundum getur verið skemmtileg leika sér með formið, en það gerðum við með þessar útvarpsauglýsingar fyrir Atlantsolíu. Við settum í gang herferð þar sem Rakel markaðsstjóri kom tímabundið í stað Sögu Garðars sem rödd Atlantsolíu til þess spara pening og halda bensíninu ódýru. Hún er ekki alveg jafn góð og Saga, hljómgæðin eru frekar slakari, en hún gerði sitt besta. Á endanum tók þó Saga aftur við sem hin eina sanna rödd Atlantsolíu.

image
image