Þegar við höfum sett upp herferðir á þeim mörgu miðlum sem eru í boði, þá viltu auðvitað sjá hvernig hvernig hlutirnir eru ganga.
Árangurs
mælingar
Árangurs
mælingar
Þegar við höfum sett upp herferðir á þeim mörgu miðlum sem eru í boði, þá viltu auðvitað sjá hvernig hvernig hlutirnir eru ganga.
Við leggjum mikið upp úr því að bjóða okkar samstarfsaðilum upp á ítarleg mælaborð í Looker Studio með gögnum sem uppfærast í rauntíma svo þú getur alltaf tekið púlsinn á þeim herferðum sem eru í gangi hverju sinni.
Enn fremur er mikilvægt setja fram upplýsingarnar með aðgengilegum hætti svo þú þurfir ekki að rýna í illskiljanlega gagna óreiðu til þess að sjá hvernig gangi. Því leggjum við upp með að mælaborðin séu hönnuð þannig að hver sem er ætti auðveldlega að geta lesið úr þeim án þess að hafa sérþekkingu á markaðssetningu.
Við elskum myndræn línurit, djörf súlurit og gómsæt kökurit!
Looker Studio kemur úr smiðju Google og er fært um að tengjast við gögn frá öllum helstu miðlum, s.s. Facebook, Instagram, TikTok, YouTube, Mailchimp og auðvitað Google. Þar að auki getum við tengt það við birtingar á innlendum miðlum svo hægt sé að fylgjast með dekkun með mjög heildstæðum hætti.
Þar sem mælaborðin uppfærast í rauntíma, er hægt að stilla tímabilið sem þú vilt skoða eins nákvæmt og þú vilt. Við setjum þau upp þannig að mikilvægustu upplýsingarnar eru mest áberandi, en hægt er breyta þeim til og leika sér með þau til þess að kafa dýpra í gögnin.