Vefhönnun

Vefhönnun

Vefsíðan er stöðugasta birtingamynd fyrirtækis út á við, og þess virði að gera hana vel.

Hinar ýmsu auglýsingar og færslur á samfélagsmiðlum koma og fara, en hafa ekki sömu viðveru og sjálf vefsíðan. Hún gefur þér tækifæri til þess að koma á framfæri allsherjar ímynd fyrirtækis eða stofnunar til almennings, ásamt þess að útlista helstu vörur og þjónustur.

Þess vegna er góð heimasíðugerð einstaklega mikilvæg til þess að halda uppi vefsíðu sem er ekki bara upplýsandi um þá starfsemi og þjónustu sem boðið er upp á, heldur einnig að hún líti vel út og passi við hönnunarheim fyrirtækisins.

Vefhönnuðir Hér&Nú hafa langa reynslu í því að hanna frá grunni vefsíður sem að sýna bestu hliðar fyrirtækisins, ásamt því að gera þær notendavænar og auðveldar í notkun.

Straumur

Við unnum náið með Kviku banka þegar kom að hönnun á vefsíðu dótturfyrirtækisins Straums. Vefsíðan er í samræmi við hönnunarheim Straums en jafnframt auðveld í notkun til þess að endurspegla þær auðveldu greiðslulausnir sem fyrirtækið býður upp á.

Styrkás

Við sköpuðum mörkun og ásýnd Styrkásar frá grunni og þar var vefsíðan engin undantekning.

Kvika eignastýring

Vefsíðuhönnun þarf að líta jafn vel út í síma eins og í tölvu. Við leggjum mikið upp úr því að heimasíðurnar sem við sköpum virki fyrir allar tegundir snjalltækja og tölva.

Hér má sjá hvernig vefsíða og app Kviku eignastýringar lítur út í snjallsíma, en það er gott dæmi um þjónustu sem fólk skoðar oftar þegar það er á ferðinni, frekar en í notalegheitum við tölvuna.