Umhverfismiðlar eru sífellt að verða mikilvægari til þess að viðhalda vörumerkjavitund á meðal almennings, því þú finnur þá í þínu nánasta umhverfi.
Umhverfismiðlar eru sífellt að verða mikilvægari til þess að viðhalda vörumerkjavitund á meðal almennings, því þú finnur þá í þínu nánasta umhverfi.
Þú finnur rafknúin auglýsingaskilti hvert sem þú lítur í borgum og bæjum landsins. Auglýsingakiltin geta verið frístandandi eða á strætóskiltum og strætisvögnum, en einnig geta þau verið á áberandi stöðum í verslunarmiðstöðvum, bílastæðahúsum, sundlaugum eða líkamsræktarstöðvum, svo örfátt sé talið.
Einn stærsti kostur slíkra umhverfismiðla er að dekkunin getur verið algjörlega sérsniðin að þörfum þíns fyrirtækis. Hægt er að keyra auglýsingaherferð á landsvísu svo allir sjái, eða hægt er að staðfæra hana á nokkrum vel völdum skiltum í því hverfi eða bæjarfélagi sem þitt fyrirtæki er staðsett.
Við getum unnið hugmyndavinnuna að auglýsingaskilti sem fangar athygli vegfarandans, hannað það frá grunni, bætt við hreyfihönnun ef þörf er á og birt það á þeim umhverfismiðlum sem best henta auglýsingaherferðinni.
Það er enginn skortur á auglýsingaskiltum sem hægt er að birta á. Okkar hlutverk að skapa fangandi auglýsingar sem prýða þessi skilti með tímabundinni viðveru sinni.
Okkar birtingaráðgjafar munu taka púlsinn á markaðnum og mæla með hvers konar dekkun hentar hverri herferð fyrir sig. Í sumum tilvikum er ekki nauðsyn á víðfeðmri herferð, og nægir að birta á nokkrum vel völdum staðsetningum sem munu hámarka áhrif auglýsingarinnar.
Stundum er best að hnitmiða herferðinni á staðsetningar sem tengjast vörunni sem verið er að auglýsa, þar sem mögulegir viðskiptavinir eru líklegastir til þess að sjá hana. Í enn öðrum tilvikum er best að fá eins mikla dekkun og hægt er á sem stystum tíma svo skilaboðin fari ekki framhjá neinum.