Prentauglýsingar

Prentauglýsingar

Auglýsingar í blöðum hafa alltaf staðið fyrir sínu og Hér&Nú hefur hannað og birt grípandi blaðaauglýsingar síðan 1990.

Blaðaauglýsingar

Helsti kosturinn við góða prentauglýsingu er að ef hún er nógu fangandi gefur hún lesandanum færi á að staldra við og inntaka upplýsingarnar betur og ítarlegra en ef um vefauglýsingu væri að ræða.

Annar kostur við blaðaauglýsingar er hvernig hægt er að hnitmiða skilaboðunum til fólksins sem líklegra er að verði opin fyrir þeim. Mismunandi markhópar lesa mismunandi blöð og því getum verið viss um að birtingarnar skili sem bestum árangri.

Hægt er að leika sér með formið þegar kemur að stórum herferðum og búa til heilsíðu, heilsíðuopnu eða jafnvel kápu auglýsingu sem umlykur blaðið svo skilaboðin fari ekki framhjá neinum.

Hér&Nú getur séð um allt ferlið þegar kemur að góðri prentauglýsingu, frá hugmyndavinnu til hönnunar og loks birtingar.

Birtingar í blöðum

Við höfum verið í langvarandi samstarfi við öll helstu blöð sem gefin er út á Íslandi, hvort sem um er að ræða víðlesin dagblöð, vikuleg tímarit eða sérprentuð ársrit.

Einnig eru ýmis landshluta-, hverfis- og bæjarblöð sem eru aðeins gefin út fyrir fólk sem býr á tilteknu svæði á landinu og þá er hægt að nýta sér staðbundnari auglýsingar um það sem er að gerast í þeirra nærumhverfi.

Okkar birtingaráðgjafar munu leggja línurnar um hvar auglýsingin muni skila bestum árangri, hafa samband við viðeigandi blaðaútgáfur og koma skilaboðunum í réttan farveg.

Heilsíðuauglýsingar

Hér&Nú
Hér&Nú
Hér&Nú
Hér&Nú