Ef fyrirtækið þitt birtist ekki í leitarniðurstöðum, þá er það svo gott sem ósýnilegt á netinu.
Ef fyrirtækið þitt birtist ekki í leitarniðurstöðum, þá er það svo gott sem ósýnilegt á netinu.
Leitarvélabestun (SEO) er mikilvæg fjárfesting fyrir öll fyrirtæki. Ástæðan er einföld, þú vilt vera viss um að mögulegir viðskiptavinir sjái þínar vörur og þjónustu fram yfir samkeppnina. Með góðri leitarvélabestun geturðu verið viss um að staðsetja þitt vörumerki beint fyrir framan fólkið sem er að leita að því sem þitt fyrirtæki býður upp á.
Kosturinn við góða leitarvélabestun er að traffíkin inn á vefsíðuna þína er lífræn (organic) sem einfaldlega þýðir að... hún er alveg ókeypis! Þannig sparast peningur sem annars þyrfti að fara í að keyra auglýsingar.
Við getum veitt ráðgjöf um hvernig er best að haga textaskrifum og efni á þinni vefsíðu svo að hún sé væn til þess að birtast ofarlega í leitarniðurstöðum. Einnig getum við alfarið séð um efnisgerð og vefhönnun á vefsíðunni ásamt þess sem við hagræðum henni fyrir leitarvélar.
Leitarvélabestun er margslungið fyrirbæri en byggist í grunninn á svokölluðum leitarorðum, sem eru orðin eða frasarnir sem fólk stimplar inn í leitarvél þegar það er að leita að einhverju sérstöku. Þannig er hægt að sníða vefsíðu fyrirtækisins að algengustu leitarorðunum sem fólk leitar að, hvort sem þau tengjast þjónustunni eða vörunum sem boðið er upp á.
Leitarvélar (líkt og Google) eru sífellt að breyta algóriþmanum sem ræður því hvaða vefsíður birtast efst í leitarniðurstöðum og því er léttir af herðum þíns fyrirtækis að láta sérfræðinga sem þekkja þessi mál vel sjá um efnisgerð á vefsíðunni þinni.
Fyrsta skrefið þegar kemur að farsælli leitarvélabestun er að greina þau leitarorð sem best tengjast vefsíðunni og þeirri þjónustu eða vörum sem þar eru í boði.
Síðan þarf að skoða samkeppnisaðila sem eru að berjast um að birtast í leitarniðurstöðum fyrir sömu leitarorð. Sum leitarorð hafa meiri samkeppni en önnur, sem þýðir að það er meiri krafa á góðri leitarvélabestun (SEO) til þess að birtast efst.
Þegar þú stimplar eitthvað inn í leitarvél, þá fer í gang algóriþmi sem skannar í rauntíma hundruð milljarða atriðisorða, með því markmiði að finna bestu leitarniðurstöður fyrir notandann.
Okkar markmið er að hagræða vefsíðunni þannig að leitarvélin (t.d. Google) velji þína vefsíðu til þess að best endurspegla hvað notandinn er að leita að. Þetta getur verið mjög góð fjárfesting þar sem það eykur umferðina inn á vefsíðu og getur leitt til aukinnar sölu. Að birtast efst í leitarniðurstöðum eykur einnig orðspor og trúverðugleika fyrirtækisins.
Þess vegna er markmiðið að hafa vel skrifaðan texta sem er auðskiljanlegur bæði fyrir lesendur og algríminn sjálfan.
Nytsemi textans felur í sér að hann sé ekki of flókinn eða tæknilegur, heldur hafi hjálpsamt inntak, er sniðinn á réttan hátt og hefur tiltölulega hnitmiðað umfjöllunarefni sem ekki er of breitt.
Það er ýmislegt á vefsíðunni sem hefur áhrif á birtingu í leitarniðurstöðum sem ekki er endilega textinn sjálfur.
Vefsíðan þarf t.d. að vera sniðinn að snjallsímum sem og öðrum tækjum, hleðslutíminn á efni á síðunni þarf að vera stuttur og myndir þurfa að passa við efnið (já, Google getur lesið myndir).
Mikilvægt er að huga vel að öllum skrifuðum lýsingum sem birtast ekki á vefsíðunni sjálfri, en eru hins vegar lesnir af leitarvélinni. Þar má nefna svokallaðar "meta" lýsingar á inntaki á vefsíðu og einnig skrifaðar lýsingar á myndum sem blindir og sjónskertir geta nýtt sér, en eru líka lesnar af leitarvélinni.
Tenglauppbygging er líka eitthvað sem leitarvélar skoða, en það er hversu oft hlekkur á vefsíðuna er birtur annars staðar og hvers konar vefsíður það eru sem birta hlekkinn.
Í leitarvélabestun hjá Hér&Nú getur þú fylgst með öllu ferlinu frá byrjun til enda, en við setjum upp fyrir þig auðskiljanleg mælaborð sem uppfærast í rauntíma með öllum helstu upplýsingum um stöðu vefsíðunnar hjá leitarvélum.
Við nýtum okkur gögn frá Google Search Console sem sýna hversu vel stæð síðan er hjá leitarvélinni og hvaða leitarorð hún er best að fanga, síðan setjum við gögnin upp á myndrænan hátt í Looker Studio sem þitt fyrirtæki eða stofnun hefur alltaf aðgang að.