Samfélagsmiðlar

Samfélagsmiðlar

Mikilvægi þess að fyrirtæki hafi góða og einkennandi stöðu á samfélagsmiðlum er ekki lengur kostur, heldur skilyrði.

Markaðssetning á samfélagsmiðlum

Það hefur aukist í sífelldum mæli að fólk í ýmis konar kauphugleiðingum nýti sér samfélagsmiðla til þess að rannsaka vörur og hvert þeir eigi að beina sínum viðskiptum.

Yfir 95% af Íslendingum nota samfélagsmiðla daglega (og hin 5% eru mögulega ekki hreinskilin í skoðanakönnunum) og því liggur beint við að setja þetta mikilvæga tól í hendur fólks með sérfræðiþekkingu til þess að hámarka afraksturinn.

Burtséð frá vangaveltum um skjótan hagnað, þá er það einfaldlega skemmtilegt að hafa góða stöðu á samfélagsmiðlum og það gerir ekkert nema jákvætt fyrir ímynd fyrirtækisins eða stofnunarinnar, og má líta á sem langtíma fjárfestingu.

Við hjá Hér&Nú getum séð um bæði reglulegar færslur á prófíl fyrirtækis og kostaðar herferðir til þess að ná til breiðari hóps.

Umsjón með samfélagsmiðlum

Við hefum langa reynslu af því að hafa umsjón með samfélagsmiðlum hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins með frábærum árangri.

Að hafa aðgengilega, fræðandi, og umfram allt, skemmtilega stöðu á samfélagsmiðlum getur reynst herslumunurinn að ná samkeppnisforskoti á fyrirtækjum í sama iðnaði.

Það sem við bjóðum upp á er að setja inn reglulegar færslur þar sem efnissköpun er alfarið í okkar höndum, frá hugmyndavinnu til hönnunar og textaskrifa, þannig að það endurspegli bestu hliðar fyrirtækisins, en er jafnframt skemmtilegt og laði að utanaðkomandi notendur.

Auglýsingar á samfélagsmiðlum

Það eru tvær hliðar á markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Annars vegar lífræn markaðssetning sem að lifir á prófíl fyrirtækisins og laðar að sér notendur með skemmtilegum og upplýsandi færslum, og hins vegar kostuð markaðssetning, þar sem auglýsingar eru keyptar til þess að ná til breiðari hóps.

Þegar kemur að auglýsingum eða kostuðum færslum þá höldum við utan um birtingarnar og sjáum til þess að þær skili sér til viðeigandi markhóps.

Einnig getum við framleitt auglýsingarnar sjálfar, hvort sem að notast er við hönnun, hreyfigrafík eða kvikmyndað efni til þess að koma skilaboðunum til skila.

Facebook markaðssetning

Yfir 90% Íslendinga nota Facebook reglulega og því er mikilvægt að fyrirtækið þitt sé vel fest í sess á þessum vinsæla miðli.

Enginn samfélagsmiðill hefur reynst jafn langlífur og fésbókin góða sem steypti af stóli vini okkar allra Myspace Tom fyrir 20 árum síðan.

Facebook er einstaklega hentugur staður til þess að hnitmiða auglýsingaherferðir að nákvæmlega þeim markhópi sem er líklegastur til þess að kaupa þína vöru eða þjónustu.

Það er ákveðin kúnst fólgin í því að ná athygli fólks þegar það skrunar í gegnum síðuna og þar komum við inn í. Við vitum hvernig hægt er að skapa grípandi og aðgengilegar færslur sem koma þínum skilaboðum til skila.

Við sjáum bæði um Facebook vegginn hjá fyrirtækinu þínu þannig að hann sé aðlaðandi og hvetji fólk til þess að verða fylgjendur svo það fái reglulega uppfærslur, ásamt því sem við sköpum kostaðar færslur til þess að ná til breiðari hóps.

Instagram markaðssetning

Instagram er líklegast aðgengilegasti samfélagsmiðillinn af þeim öllum þar sem hann er að mestu leyti sjónrænn.

Miðillinn reiðir sig á aðkallandi myndir og grafík til þess að laða að sér augu notandans. Þarna skínum við með okkar margra áratuga reynslu við að búa til auglýsingar sem grípa athygli og skilja eitthvað eftir sig, og er auðvelt að yfirfæra þá þekkingu á miðil eins og Instagram.

Tegundirnar af auglýsingum á Instagram eru einstaklega fjölbreyttar og bjóða upp á marga möguleika, hvort sem það séu klassískar myndaauglýsingar, hringekjur (carousel), IGTV, vefverslunarauglýsingar eða Instagram Stories.

Síðustu 10 ár hefur Instagram verið samtvinnað Facebook þegar kemur að auglýsingum og því hægt að keyra afkastamiklar herferðir á báðum miðlum samtímis.

TikTok markaðssetning

Í miklum mæli hefur rannsóknarvinnu neytenda fyrir vörukaup færst yfir til TikTok og fyrirtæki sem fylgja ekki eftir þeirri þróun verða eftir á.

Markaðssetningin sem á sér stað á TikTok þarf að vera grípandi frá fyrstu sekúndu, annars flettir dómharður þumalputtinn efninu í burtu. Næst þarf að viðhalda athyglinni með skemmtilegu efni sem við elskum að framleiða.

Við leggjumst í frjóa hugmyndavinnuna með breiðum hópi af ungu fólki og höfum unnið með nokkrum af helstu áhrifavöldum landsins.

Bestu „auglýsingarnar“ líta ekki út eins og auglýsingar, en skilja eftir ímynd vörumerkisins í huga áhorfandans í jákvæðu ljósi.

Reddit markaðssetning

Íslendingar eru þriðju algengustu notendur Reddit á heimsvísu… miðað við höfðatölu.

Þó höfðatölunni góðu sé skeytt við, þá er þetta samt mjög mikill fjöldi notenda (um 40% af þjóðinni) og hallar á yngri hliðina. Reddit er frekar vannýttur miðill hér á landi þegar kemur að beinni markaðssetningu, en það gefur þeim sem nýta sér hann bara forskot.

Miðillinn er skiptur niður í ótal spjallborð eftir áhugamálum og því mjög auðvelt er að beina markaðsherferðum nákvæmlega að því fólki sem hafa áhuga á þinni þjónustu eða vörum.