Þegar mögulegur viðskiptavinur stendur við búðarhilluna frammi fyrir svipuðum vörum á sambærilegu verði, hvað er það sem gerir herslumuninn?
Jú, auðvitað umbúðirnar!
Þó manni sé meinað að dæma bókina eftir kápunni, þá gerir fólk það hiklaust þegar kemur að umbúðum. Því er einstaklega mikilvægt að umbúðir séu vel hannaðar og endurspegli það sem varan stendur fyrir og vekji upp jákvæð hughrif.
Litaval, leturgerð, grafík, myndefni og mynstur samtvinnast með fagurfræðilegum hætti til þess að veita vörunni góða ímynd sem passar við innihald hennar.
Hver og ein vara kallar eftir mismunandi umbúðahönnun og hafa grafísku hönnuðir okkar mikla reynslu af því að hanna umbúðir fyrir sælgæti, hreinlætisvörur, drykki, gjafabréf og matvörur af ýmsum toga, svo fátt sé nefnt.
