„Besta leiðin“ hefur verið slagorð Strætó í áraraðir og endurspeglar hlutverkið sem Strætó gegnir í borginni. Slagorðið hefur nú fengið nýja nálgun með áherslu á að gera daglegar ferðir jákvæðari og skemmtilegri. Þrjár meginleiðir voru í forgrunni: fjölskylduferð, menningarferð og skemmtiferð. Með einföldum og hvetjandi textum, ásamt skemmtilegum myndum, vildum við gera Strætó að góðum og þægilegum ferðamáta sem farþegar geta tengt við jákvæða upplifun, hvort sem það er á leið í vinnu, sund eða verslunarferð.
Markmiðið var að sýna að Strætó er meira en bara ferðamáti, hann spilar lykilhlutverk í því að skapa góðar minningar og auka samverustundir milli vina og fjölskyldna. Lögð var áhersla á að hvetja fólk til að velja Strætó í hversdagslegum ferðum því það er bæði einföld og umhverfisvæn leið til að komast á áfangastað.
Hönnun verkefnisins byggir á skýrum og persónulegum slagorðum sem tala beint til fólks, í bland við leikandi myndir sem lýsa mismunandi leiðum og tækifærum sem Strætó býður upp á. Lögð var áhersla á að gera skilaboðin létt og skemmtileg sem vekja jákvæðar tilfinningar hjá farþegum.
Herferðin hefur sýnt að Strætó er ekki aðeins leið til að komast á áfangastað heldur einnig hluti af góðri upplifun og tækifæri til að skapa nýjar minningar.
Þjónustuaukning Strætó
Á árinu innleiddi Strætó umfangsmikla þjónustuaukningu á annatímum með það markmið að bæta almenningssamgöngur og gera Strætó að betri og þægilegri kosti fyrir farþega. Verkefnið fól í sér fjölgun ferða og styttri biðtíma á helstu leiðum, auk fleiri kvöldferða á virkum dögum. Við tókum að okkur að hanna og framleiða auglýsingar og kynningarefni sem miðla þessum breytingum á skýran og aðgengilegan hátt til almennings.
Markmiðið var að kynna þjónustuaukninguna á aðgengilegan og skýran hátt þannig að farþegar Strætó sæu strax breytingarnar og hvaða ávinningur fylgdi þeim. Jafnframt var lögð áhersla á hvernig aukin tíðni á ferðum og fleiri kvöldferðir á virkum dögum bæta ferðavenjur fólks og gera Strætó að enn þægilegri kosti. Með því að kynna þessa þjónustuaukningu vildum við tryggja að farþegar væru vel upplýstir og ánægðir með breytinguna sem eykur þjónustuna til muna.
Í hönnun auglýsinganna, sem varpa ljósi á þjónustuaukninguna, var lögð áhersla á yfirskriftina: Fleiri ferðir, styttri bið! til að ná til farþega með einföldum og skýrum skilaboðum.
Þjónustuaukning Strætó er mikilvæg þróun í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og með áberandi kynningarefni eru meiri líkur á að upplýsingarnar kæmust til skila. Með fleiri ferðum og styttri biðtíma er Strætó enn ákjósanlegri kostur í daglegum ferðum.


Tímabilskort fyrir nema
Nemaherferðin beindist sérstaklega að menntaskóla- og háskólanemum á höfuðborgarsvæðinu. Við vildum sýna á einfaldan hátt hvaða Strætóleiðir stoppa skammt frá skólunum þeirra og jafnframt vekja athygli á því að nemar fá 50% afslátt af öllum tímabilskortum Strætó. Með því að tengja upplýsingar um þær Strætóleiðir sem stoppa við skólana náðum við betur til markhópsins og sýndum að Strætó er hagkvæmur og þægilegur ferðamáti í skólann.
Markmiðið var að hvetja námsfólk til að velja Strætó sem hagkvæman og umhverfisvænan ferðamáta í skólann. Jafnframt vildum við vekja athygli á að námsfólk getur fengið 50% afslátt af tímabilskortum sem gerir Strætó að enn ákjósanlegri ferðamáta fyrir nema á Íslandi.
Fyrir nemaherferðina ákváðum við að taka fyrir valda menntaskóla og háskóla og tengja saman þær Strætóleiðir sem stoppa skammt frá skólunum til að sýna nemum hve auðvelt það er að velja Strætó. Þessi framsetning sýnir á sjónrænan hátt hvaða Strætóleiðir nemar geta tekið til og frá skóla.
Herferðin vakti mikla athygli meðal nema og jók vitund þeirra um bæði afsláttinn og möguleikana sem Strætó býður upp á. Við fengum jákvæð viðbrögð og teljum við að herferðin hafi hvatt nemendur til að velja Strætó sem ferðamáta í skólann.