Aur

Deildu með vinum

Um verkefnið

Aur kynnir til leiks nýtt og endurbætt app sem inniheldur nýjungar í þjónustu við notendur Aurs. Okkar hlutverk var að brjóta upp normið í núverandi fjármálaumhverfi og hvetja til aukins frelsis í fjármálahegðun ungs fólks.

Markmið

Aur er ungt og ferskt vörumerki sem hefur síðustu ár verið leiðandi á markaði meðal ungs fólks. Frá upphafi var áhersla lögð á að viðhalda ferskum gildum vörumerkisins í herferð sem endurspeglar ævintýragjarnan og óheflaðan lífsstíl. Með þessu tókst okkur að skapa vörumerkinu aukna sérstöðu í huga markhóps og notenda.

Hugmynd

Hönnunin og hugmyndavinnan sneri að því að brjóta upp hefðbundnar aðstæður með ófyrirsjánlegum leiðum. Þrátt fyrir nýmóðins yfirbragð herferðarinnar er undirtónninn í hönnun og stíliseringu bæði hrár og innblásinn af tískubylgjum fortíðar. Efnið fær að njóta sín á stórum flötum með hvítum ramma í anda tískublaða.

Niðurstaða

Útkoman er ung, hröð og fersk herferð sem hvetur til aukins frelsis í heimi fjármála.

Borga, rukka eða skipta?

Markaðsefni

Kvikmyndað efni í bland við ljósmyndir með skilaboðum herferðarinnar.

Ljósmyndir

Ljósmyndarinn Viðar Logi smellti af og útkoman varð lifandi efni sem hreyfist í takt við skilaboðin.

Project Image
Project Image

Project Image
Project Image
Project Image
Project Image
Project Image
Project Image

Bak við tjöldin

Skoðaðu næsta verkefni