Hvar á að byrja? Hvert er verið að fara? Hvernig á þetta að vera? Hvað eigum við að gera?
Hvar á að byrja? Hvert er verið að fara? Hvernig á þetta að vera? Hvað eigum við að gera?
Hér&Nú veitir heildstæða markaðsráðgjöf á öllum sviðum markaðssetningar. Við framkvæmum greinargóðar markaðsrannsóknir til þess að skoða stöðu vörumerkisins á markaðnum og ákveðum þaðan næstu skref sem munu skila sér í bættri ásýnd.
Okkar markaðsráðgjöf felur í sér allsherjar nálgun, bæði með hefðbundnum hætti, en einnig stafrænni markaðsráðgjöf sem er sífellt að verða mikilvægara fyrir fyrirtæki af öllum stærðargráðum.
Samkeppnisgreining er hjálpsamt tól til þess að bera sig saman við aðra í sama geira, hvernig viðskiptavinir álíta vörumerkið og þannig sjáum við hvaða tækifæri eru til staðar til að skara fram úr og skapa sérstöðu.
Í gegnum okkar löngu sögu höfum við höfum hjálpað ótal fyrirtækjum og stofnunum að búa til langvarandi stefnumótun í markaðssetningu sem leiðir til betri árangurs og víðtækari vörumerkjavitundar.
Það getur verið erfitt að stara á autt blað (eða tölvuskjá), en hugmyndasmiðirnir hjá Hér&Nú eru fljótir að stútfylla það af hugmyndum sem skila sér í skemmtilegum auglýsingum, hnittnum orðalögum og vel markaðri ásýnd.
Í gegnum okkar löngu sögu höfum við hjálpað ótal fyrirtækjum og stofnunum að skapa sér sérstöðu á markaðanum með því að vera eftirminnilegri en samkeppnin.
Allt þetta byrjar með hugmyndavinnu þar sem engin hugmynd er of galin og ekkert er útilokað. Smám saman, verða skilaboðin skilgreindari og ímyndin hnitmiðaðri. Þegar hugmyndavinnunni er lokið, þarf bara að framkvæma hana!
Við sjáum um hugmyndavinnu að auglýsingum fyrir sjónvarp, útvarp, blöð eða stafræna miðla. Einnig komum við framleiðslunni í verk innanhús og munum loks birta afraksturinn á viðeigandi miðli. Því erum við hluti af ferlinu alla leið, frá hugmynd til raunveruleika.