Mörkun vörumerkisins getur reynst verðmætasta eign fyrirtækis og veitt því einkennandi sérstöðu á þéttum markaði.
Mörkun (e. branding) felur í sér að skapa heildar ásýnd fyrirtækis eða stofnunar og er einstaklega mikilvægt að ná rétt frá fyrsta degi því allt markaðsefni sem skapað er í kjölfarið byggist á grunninum sem mörkunin setur.
Best er að ná að skila sem flestum upplýsingum til neytandans, með sem fæstum orðum, eða jafnvel engum! Vörumerki, litapalletta, myndefni, hönnun, lógó og umgjörð eiga að koma á framfæri nákvæmlega hvað það er sem gerir fyrirtækið einstakt, og hvers konar sérstöðu það hefur.
Önnur atriði eins og kjörorð, leturgerð, kynningartexti og, að sjálfsögðu, sjálft nafnið á fyrirtækinu skipta líka miklu máli og við veitum okkar kúnnum markaðsráðgjöf frá byrjun til enda þegar kemur að farsælli mörkun.
Við höfum hjálpað ótal fyrirtækjum og stofnunum að marka sig með eftirminnilegum hætti, svo almenningur þekki þau auðveldlega, ásamt því að hafa endurmarkað þekkt íslensk vörumerki svo þau falli betur að nýjum tímum.
